Jólatónleikar leikfélagsins Baldurs fóru fram föstudaginn 22. desember í Baldurshaga Bíldudal. Tónleikar þessir eru nú orðnir fastur liður í aðdraganda jólanna hér á Bíldudal. Á borðum var heitt súkkulaði og piparkökur og ekki var dagskráin af verri endanum. Má með sanni segja að tónleikarnir tókust afar vel og voru vel sóttir þó ekki hafi verið húsfyllir.

Hannes Friðriksson setti tónleikana með stuttu ávarpi

og síðan las séra Sveinn Valgaeirsson sóknarprestur Bíldudals og Tálknafjarðar jólasögu.

Að lokinni jólasögunni hófst söngdagskráin með því að börnin á leikskólanum Tjarnarbrekku fluttu nokkur lög.
Á myndinni talið frá vinstri eru: Elínborg A Benediktsdóttir fóstra, Tómas Henry Arnarsson, Veronika Karen Jónsdóttir, Sylvía Björt Jónsdóttir, Jóna Krista Jónsdóttir, Aníta Sól Valdimarsdóttir og Lára Þorkelsdóttir fóstra. Leikskólabörnin sungu lögin; Jólasveinar ganga um gólf, Adam átti syni sjö, Í skóginum stóð kofi einn, Jólasveinar einn og átta og Skín í rauðar skotthúfur.

Næst á svið stigu á svið Flautusveitin sem jafnframt er stúlknakór. Þannig háttar til að þær ásamt Alex Maron Einarssyni eru í tónlistaskólanum og fara tímar jafnan þannig fram að fyrst er tekin æfing á flautu, síðan er spilað svolítið á píanó og síðan sungið. Ekki bar á öðru en þarna komi efnilegir nemendur fram og mikill áhugi á tónlistinni í öllum hópnum. Talið frá vinstri eru; Viktoría Líf Ingibergsdóttir, Auður Ír Viðarsdóttir, Sandra Líf Pálsdóttir, Lofvísa Rut Jónsdóttir, Birna Sólbjört Jónsdóttir og Alex Maron Einarsson sem spilaði undir á gítar ásamt Ragnari Jónssyni. Fyrst fluttu þau á flautu og með undirspili gítars og píanós lögin; Rokklingarnir, Klukkur og Klukknahljómur,

síðan sungu stúlkurnar lögin; Bjart er yfir Betlihem, Skín í rauða skotthúfu, Meiri snjó, meiri snjó, Ég sá mömmu kyssa jólasvein.

Að loknum flutningi nemenda tónlistarskólans kom Ágústa Mattý Pálsdóttir á svið og las jólasöguna Tilgangur jólanna, að loknum lestri flutti Ágústa frumsamið ljóð eftir sig sem hún nefnir, “Mín stóra ósk”
Mín stóra ósk
Jólin eru að koma , gamanið byrjar þá
Fólk kemur hvaðan af til að vera með þeim
Sem maður elskar, til að eyða hátíðarhöldum með fjölskyldunni,
hér er mín stóra ósk,
enginn þarf að deyja,
allir hafa vini
og ástin endar aldrei,
það er mín stóra ósk.
En ekkert er fullkomið ekki einu sinni
Jólin, en jólin þurf ekki að vera
Fullkomin, bara að við höfum einhvern
Til að eiða jólunum með,
Það er mín stóra ósk.
Ágústa Mattý Pálsdóttir
Virkilega gott ljóð Ágústa og ættu margir að taka innihald þess til íhugunar.


Næst var það Veronika Karen Jónsdóttir sem steig á stokk, Veronika er fimm ára og hafði einstaklega skemmtilega framkomu og var mjög sviðsörugg. Ekki er vafi á að við eigum eftir að njóta söngs hennar í framtíðinni. Veronika söng lagið Skín í rauða skotthúfu og var vel fagnað að loknum söng.

Gísli Ægir Ágústsson var næstur á svið og með honum til undirleiks voru Alex Maron Einarsson á gítar og Ragnar Jónsson á píanó. Gísli Ægir söng lögin; Blue Cristmas og Í bljúgri bæn. Gísli Ægir er ákaflega líflegur flytjandi og hefur mjög skemmtilega og góða sviðsframkomu ásamt því að vera góður söngvari.

Á eftir Gísla Ægir var það okkar ástsæli stórsöngvari Jón Kr. Ólafsson og flutti hann okkur lagið Hvít jól með undirleik Ragnars Jónssonar. Ekki bregst hann Jón Kr. okkur og á hann miklar þakkir skilið í gegnum tíðina fyrir flutning sinn.

Síðust var það formaður Leikfélagsins Baldurs, Guðbjörg J Theódórs sem kom upp og söng lögin Jólin, jólin og Hátíð í bæ. Guðbjörg söng afskaplega fallega og er hún söng lagið Hátíð í bæ mátti sjá tár í hvarmi, svo innilega var sungið.

Að lokum komu allir flytjendur á svið og allir sungu saman Heims um ból.

Ragnar Jónsson við píanóið

ein og sjá má ver margt um mannin á tónleikunum.
Á tónleikunum las Hannes Friðriksson upp eftirfarandi bréf sem jafnframt var tilkynning um úthlutun úr styrktarsjóðnum Hanneságústörn
HANNESÖRNÁGÚST – STYRKTARSJÓÐUR
Styrktarsjóðurinn HANNESÖRNÁGÚST er nefndur eftir Bílddælsku leikurunum, Ágústi Gíslasyni, Hannesi Friðrikssyni og Erni Gíslasyni. Tilgangur sjóðsins er að efla leiklistarmenntun á Bíldudal. Heimili og varnarþing sjóðsins er á Bíldudal. Sjóðurinn var stofnaður 26. apríl 2006 í Baldurshaga á Bíldudal. Stofnandi sjóðsins er Kómedíuleikhúsið og Elfar Logi Hannesson. Styrktarfé er fengið frá Kómedíuleikhúsinu og einnig frá einstaklingum og fyrirtækjum.
Fyrsta úthlutun desember 2006:
Á vordögum verður haldið námskeið í framsögn í grunnskólanum á Bíldudal og í Baldurshaga fyrir félaga í Leikfélaginu Baldri sem og annarra Bílddælinga. Kennari er Sigurður Skúlason, leikari, sem er löngu þjóðkunnur fyrir leik sinn á leiksviði og í kvikmyndum. Rödd hans þekkja margir enda er hann einn af okkar allra bestu lesurum í hljóðvarpi. Nánari tímasetning á námskeiðinu verður kunngjörð þegar nær dregur vori.
Kær Jólakveðja,
Stjórn Hannesörnágúst
Hannes Friðriksson, Örn Gíslason, Ágúst Gíslason, Elfar Logi Hannesson