Sunnudaginn 10. desember var hið árlega Hangikjötskvöld svo nefnda haldið í Baldurshaga.
Þannig er, að líklega í yfir 20 ár hafa komið saman fullorðnir menn á Bíldudal og borðað saman hangikjöt. Tilgangurinn er að eiga saman gott kvöld, borða hangikjöt og á stundum syngja svolítið nú og segja skemmtilegar sögur. Eitt er ávalt fast á dagskrá; Formaður hangikjötsfélagsins Ágúst Gíslason fer yfir ársskýrslu félagsins og Guðmundur Sævar Guðjónsson les úr jólaguðspallinu og allir fara saman með Faðirvorið.
Á stundur eru kynningar eða eitthvað annað fróðlegt að loknu borðhaldi.
Hangikjötið í ár var ljúffengt enda reykt af meistaranum Gunnari Valdimarssyni, en hann hefur séð um þann þátt undanfarin ár.
Sjá má hér nokkrar myndir frá samsætinu og eins og sjá má var þetta einkar vel lukkað kvöld.

Formaður Hangikjötsfélagssins setur fund og flytur ársskýrslu

Guðmundur Sævar Guðjónsson les jólaguðspjallið

Hangikjötið fært upp úr pottunum, já fallegt er það

Gunnar Karl er sérstakur spesíallisti í grænu baununum og uppstúfinu

Já þá er borðhald hafið og hangikjötið er afar gott þetta árið, takk Gunnar Vald.

Svo er að taka lagið.

Gamlir skipsfélagar að spjalli, víst ekki í sama flokki
Eins og fyrr er greint frá er á stundum flutt erindi nú eða haldnar kynningar á hangikjötskvöldum.
Að þessu sinni var haldin sýning á nokkrum hjálpartækjum sem einn Bílddælingur hefur fundið upp. Þannig er að nokkrir Bílddælingar eru að vinna fjarri heimabyggð. Vinna þeir flestir við akstur stórra vinnuvéla sem helst ekki mega stoppa. Einn af þessum ágætu mönnum hefur fundið upp hjálpartækin sem nýtast vel við þær aðstæður sem þessir fjarvinnandi Bílddælingar vinna við því ekki þýðir að stoppa þó náttúran kalli.

Fyrsta tækið er reyndar fyrir þá sem eru orðnir framsettir og sjá ekki þann sem þeir halda mest upp á. Tækið er sett á fótinn fyrir ofan ökla og spegillinn stilltur þannig að til vinarins sjáist.

Hér má sjá tækið í nærmynd.

Þessi búnaður er tvíþættur, um hálsinn er salernisrúlluhaldari, nauðsynlegur þegar bregða þarf sér út í náttúruna í flýti. Neðri búnaðurinn skýrir sig kannski sjálfur, við hann er slanga sem stinga má ofan í flöski nú eða út um gluggan á vörubílnum ef manni verður mál.

Ekki eru allir starfsmennirnir karlkyns, þessi búnaður er fyrir kvennkynið og skýrir sig kannski sjálfur, við hann má tengja slöngu eins og við búnað karla.

Hér má sjá búnaðinn saman, nú er bara að hefja fjöldaframleiðslu en hún mun í undirbúningi.

Já það er gamað að þessu.

Já svo var sungið og spilað af innlifun

það má segja að þarna hafi verið myndaður karlakór, bara ágætur kór.