ENGLISH
mánudagurinn 6. september

Aðalfundur leikfélagsins Baldurs var haldinn í gær þann 4. nóvember. Eins og mörg önnur ár var síðasta starfsár atburðaríkt hjá leikfélaginu. Í desember voru haldnir jólatónleikar, um páska grímuball og síðan uppfærði leikfélagið og sýndi leikritið Rauðhettu undir leikstjórn Þrastar Gunnarssonar. Var leikritið frumsýnt á hátíðinni Hálfbauninn sem tókst afskaplega vel.

 Þess skal getið hér að Baugur Group styrkti leikfélagið um 500 þúsund krónur og eru Baugsmönnum færðar innilegar þakkir fyrir.

Nú, ekki verður næsta starfsár með minna sniði en þá mun leikfélagið halda upp á fjörutíu ára afmæli sitt en leikfélagið Baldur var stofnað 1966.

Að því tilefni var á fundinum eftirfarandi starfsáætlun samþykkt:

  1. Desinn verður haldin 2. desember með pompi og prakt, Elvar Logi Hannesson hefur verið fenginn til að setja upp söngleik með þeim Baldursfélögum og síðan verður að sjálfsögðu borðhald með góðum mat og dansinn mun duna fram á nótt.
  2. Jólatónleikarnir verða á sínum stað 22. desember. Tónleikar þessir hafa skipað sér fastan sess í mannlífinu hér á Bíldudal þar sem fólk kemur saman og fær sér kakó og piparkökur á meðan hlítt er á fjölbreytta dagskrá bílddælskra flytjanda.
  3. Grímuball verður síðan um páskana þar sem hin ýmsu gerfi koma fram á sjónarsviðið.
  4. Á hátíðinni Bíldudals-grænum sem haldin verður næsta sumar mun leikfélagið koma fram með atriði sem of snemmt er að tiltaka að sinni.

 

Já öflugt starf framundan og til margs að hlakka. Að loknum formlegum fundi þar sem stjórn leikfélagsins Baldurs var endurkjörin með lófaklappi var boðað til sviðaveislu.

 

Sviðaveislan hefur verið haldin í allmörg ár þar sem leikfélagsmenn borða saman svið að loknum aðalfundi. Að vanda voru sviðin mjög góð en yfirkokkur að þessu sinni var Örn Gíslason og Páll Ágústsson aðstoðaði í uppstúfsgerð. Gerður var góður rómur að matnum en menn söknuðu reyktu sviðanna en þau verða kannski með næst.

 

Nú er lag góðir hálsar, takið frá í dagskránni hjá ykkur fyrstu helgina í desember og mætið á Desinn því hann verður sko í lagi.

kv jþ


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir