ENGLISH
mánudagurinn 6. september

  Öskudagur á Bíldudal.

Yngra fólkið á Bíldudal heldur upp á öskudaginn eins og víðast hvar annarsstaðar á Íslandi með heimsóknum og söng. Í ár eru búningar virkilega góðir og söngurinn góður. Í morgun var Páll Ágústsson sem og aðrir heimsóttir, leikskólabörnin náðu Páli í rúminu og fékk hann sungið fyrir sig á meðan hann kúrði enn undir sæng, mátti Páll því mæti í leikskólann og færi söngfuglum nammi í staðinn fyrir sönginn. Betur var hann undirbúinn er Grunnskólanemar bönkuðu upp á og fékk hann því þar einnig góðan söng.

Grímuball var haldið í Baldurshaga á Öskudaginn 21. febrúar. Vel var mætt á grímuballið og voru búningar fjölbreyttir og vandaðir. Það er foreldrafélag Grunnskólans sem sér um að halda  grímuballið. Þau sem unnu til verlauna voru; Sonja í fyrsta sæti, Lovísa Rut í öðru sæti og Sandra Líf í þriðja sæti. En við skulum lofa myndum að tala sínu mái.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir