Heimsókn í sveitina
Það var fallegt veðrið á sunnudaginn 4. mars þegar ljósmyndari brá sér í sveitina á Suðurfjörðunum.

Fossfjörður spegilsléttur
Í dag má segja að búið sé á tveimur bæjum Suðurfjarða Arnarfjarðar, á Fossi og í Dufansdal. Það eru þær mæðgur Esther Gísladóttir og Þóra María Matthíasdóttir sem er fjárbændur, Þóra í Dufansdal og Esther á Fossi. Þær eru báðar miklar búkonur og eljusamar við sinningu fjár sins. Esther er með um 380 kindur á húsum en Þóra er með um 100 kindur í húsum Eiríks Björnssonar í Dufansdal. Þær mæðgur hyggja nú á að byggja ný fjárhús á Fossi því húsin þar eru komin til ára sinna, byggð um 1930 og því börn síns tíma. En gaman var að koma í fjárhúsin og fylgjast með gegningum þeirra mæðgna, rifja upp gamlar minningar og virða fyrir sér kvikfénaðinn.

Hlaðan byggð um 1983 en Fjárhúsin voru byggð 1930.

Esther við gegningar

Matthías er liðtækur í fjárhúsunum

Verið að gefa á jötuna

Góð er tuggan, gefið er tvisvar á dag.

Fjárhundurinn Gígja kúrir í kofa sínum gamla.

Gígja er ákaflega góður fjárhundur af Bordércolle kyni. Gígja er líklega einn besti fjárhundur í Arnarfirði og þó víðar væri leitað.

Það er gaman í sveitinni, Jón Aron og Svanur Snær í bílaleik.

Guðbjörgunum tveim finnst gaman að leika sér í fjárhúsunum.

Vel er farið með karlpeninginn, klæddir og komnir á ról.

Tígull er virðulegur með hornin fjögur, hann nýtur nokkurs uppáhalds enda duglegur í fjárhúsunum.

Nær á myndinni er Tígulflekka en fjær dóttir hennar Óshyrna en þær gengu úti veturinn 2003 / 2004 í Geirþjófsfirði inn í Langabotni.

Þóra María Matthíasdóttir horfir ánægð yfir fjárhóp sinn.

Bauga Lín brosir blítt til ljósmyndara.

Guðbjörg Júlíana Esther Jökulsdóttir og Guðbjörg Ásta Andradóttir kampakátar í sveitinni.

Gullveig er ákalega andlitsfríð en á haustin kann hún vel á smalann og flýr í kletta en kemur til bæja þegar haustar að.

Dóttir hennar Króna er aftur á móti ósköp venjuleg kind og hefur ekki erft dillur móður sinnar

Fjárhundar Þóru þeir Nellý og Táta hvíla og njóta góða veður sins.