ENGLISH
föstudagurinn 30. júlí

Háskólanemar á Bíldudal

 

Nú eru 20 háskólanemar frá samtökum sem nefnast Seeds staddir á Bíldudal. Þetta er háskólafólk frá ýmsum löndur og munu dvelja í tvær vikur og vinna að ýmsum verkefnum, svo sem lagningu göngustíga í skógræktinni og inn í Geirþjófsfirði, aðstoða við viðgerðir á listasafni Samúels Jónssonar í Selárdal. Einnig er verið að gera tjörnina í sögunni um Dimmalimm sem Muggur samdi og myndskreytti. Tjörnin verður neðan við minnisvarðan um Mugg á Tungunni.  

 

Glæsilegur hópur ungs fólks um borð í Höfrungi BA 60

 

Hér er vinna hafin við gert tjarnarinnar í sögunni um Dimmalimm.

 

Hópurinn brá sér á sjóstöng

 

og kappróðarbátarnir eru komnir á flot aftur, róið að hjartans list


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir