ENGLISH
mánudagurinn 6. september

 

Sólarkaffi Bílddælinga.

Þorrablót Slysavarnardeildar kvenna á Bíldudal var haldið 3. febrúar 2007 með pompi og prakt að vanda.

Þorramaturinn var góður og allt gekk að óskum. Segja má með sanni að allir skemmtu sér vel. Þema skemmtiatriðanna var að þorpið Bíldudalur var orðið að safni, þannig fjölluðu þær slysavarnarkonur um liðna atburði og gerðu gaman að með söng og leik. Hljómsveitin Farfuglarnir spiluðu síðan fyrir dansi og stóðu sig með prýði og var mikið fjör á ballinu, mikið dansað, skyldi engan undra þó einhverjir séu aumir í kálfum eftir nóttina. Er það orð að sönnu að þarna fer hin ágætasta danshljómsveit sem getur haldið uppi miklu fjöri. En höfum ekki frekari orð þar um en lofum myndunum að tala.

 

Formaður Slysavarnardeildarinnar, Ásdís Snót Sævarsdóttir flytur ávarp og setur blótið.

Svo hófst yfirferðin um safnið, gestir orðnir að safngripum og skemmtileg umfjöllun framundan.

Það var fjallað um hin ýmsu mál í söng og leik og að sjálfsögðu bar níðstöngina á góma

Sungið var og trallað, karlmenn sungu fyrir konur

Konur sungu einnig fyrir karlana

Og fengu gott klapp fyrir.

Já allir sungu með

Nú styttist í dansinn, lagt á ráðin með prógrammið

Hressar og kátar stúlkur, það var smá hlé hjá hljómsveitinni.

Já það fer bara vel á þessu.

Mæðgurnar frá Fossi

Svo er það hljómsveitin, Maggi

Já og Matti hljóp í skarðið vegna veikinda

Helgi þenur harmonikkuna.

Gísli Ægir sðng af hjartans lyst.

Gísli Bjarnason á gítarnum

Viðar hljóp líka undir vegna veikinda og var kröftugur á trommur

Hjalti spilaði lika á trommur og var stuð hjá þeim trommurum

Takturinn fínn

Og dansinn dunaði

Mikið fjör allt kvöldið og nóttina líka.

Gamlárskvöld 2006.

Á gamlársdagskvöld var kveikt í brennu á Bíldudal eins og ávalt. Brennan er nú höfð fram við Völuvöll en nokkur ár eru síðan síðast var brennt á Byltuhlíð. Björgunarsveitin Kópur var með mjög góða flugeldasýningu og sungin voru nokkur lög. Veðrið var mjög gott og naut fólk vel. Eins og sjá má á myndunum er flugeldasýning orðin mikið mannvirki, útbúinn er skotpallur á dráttarvélarvagni þar sem allar bomburnar eru tengdar saman. Stærstu bomburnar sem skotið var upp að þessu sinni voru þrjár 24 tommu, 25 kg. þungar. Þær minni voru samtals 130 ásamt nokkrum tertum og fallhlífarflugeldum og blysum. Sýningin var því viðamikil og tilkomumikil í góða veðrinu.

Takk fyrir Kópsmenn.


Hér má sjá þá Kópsmenn með bombuna 24 tommu


Skotpallurinn klár


Flugeldur ný upp skotið


Björgunarsveitarmaðurinn Björn Magnússon setur gleraugu á unga dömu


Sungið af hjartans lyst


Brennukóngarnir Fannar Freyr og Ívar Örn


Brennan nokkuð brunnin


Vísnakvöld 2006.

Á haustdögum 1986 var stofnað félag vísnavina á Bíldudal sem fékk nafnið Skammdegisörninn, stofnendur félagsins voru þeir Páll Ágústsson, Gísli Bjarnason og Helgi Hjálmtýrsson. Það mun hafa verið Páll Ágústsson sem fékk hugmyndina að félaginu er hann var út í Noregi á árunum 1978 til 1981, þá rakst hann inn á pöbb, líklega árið 1980, þar sem gítar gekk á milli bása og einhver í hverjum bás spilaði og söng öðrum til skemmtunar. Þegar Páll kemur heim ræðir hann þetta við félaga sína og úr verður Vísnavinafélagið Skammdegisörninn. Fyrsta Vísnavinakvöldið er síðan haldið 1986 og þá á milli jóla og nýárs. Allar götur síðan hafa þeir félagar staðið fyrir Vísnakvöldinu með dyggri aðstoð vina og ættingja. Vísnakvöldið fer þannig fram að á stokk stíga Bílddælingar og syngja og spila, fara með ljóð eða vísur, sögur og kvæði. Er dagskráin ávalt þétt skipuð og stendur oftast í þrjár til fjórar klukkustundir. Nú seinni árin er seldur bjór og stundum tekinn dans á eftir. Margir hafa stígið sín fyrstu spor á sviði á Vísnakvöldum en þess skal þó getið að Bílddælingar flestir eru ákaflega sviðsvanir.
Hér koma síðan nokkrar myndir frá kvöldinu þann 29. des 2006.


Tveir af stofnendum Skammdesisörnsins, Páll og Gísli
 

Guðbjörg var fyrst á svið með undirspilurunum Gísla og Hirti


Benedikt spilaði síðan á harmonikku, meðal annars tvö lög samin af honum og var þetta frumflutningur þeirra.


Þeir frændur Gísli og Hjörtur fluttu brot úr tónverki sem þeir ásamt Helga Hjálmtýrssyni eru að semja og fjallar um galdrabrennur í Selárdal á öldum áður en þar voru brenndir á báli vegna meintra galdra sjö einstaklingar af 21 sem hlutu slíkan dóm á landinu öllu. 
Sá hluti sem fluttur var nú var mjög kröftugur og lofar góðu en tónverkið í heild verður frumflutt á BíldudalsGrænum í sumar



Gísli við flutning Tónverksins


Þá var komið að Matthíasi en hann söng og spilaði tvö kröftug lög.


Hannes las upp úr ljóðabók Þórarins, Æskumyndir


Þau hjónakornin Signý og Fannar voru næst og fluttu þau tvö lög


Ágúst Gíslason var kynnir á kvöldinum og kallaði meðal annars Pétur Bjarnason á svið sem fór á kostum, gerði bara smá grín að Hannesi, bara lítið því hann var búinn að lofa Erni Gíslasyni að gera ekki grín að Hannesi.


Gísli Ægir kom þar næstur við undirleik Gísla og Hjartar, Gísla klikkar ekki enda orðinn sviðsvanur.


Þá voru það þeir kumpánar Gísli, Ottó, Hannes og Ágúst sem hófu upp sína rausn og sungu kröftulega við undirleik Matthíasar og Viðars


Næstur var á svið söngvarinn okkar eini sanni Jón Kr. Ólafsson sem tók nokkur lög við undirleik Matthíasar og Viðars


Og Gísli Ægir bættist í hópinn og luku þeir sínu framlagi með að taka saman Ég er frjáls, eins og þeim einum er lagið og var vel fagnað.


Steini var næstur og tók tvö lög, er hann orðinn mjög öflugur flytjandi


Þeir félagar Matthías og Viðar sáu um undirspil margra flytjanda


Vel var mætt og skemmti fólk sé vel og naut frábærs kvölds


Að loknum flutningi var svo lagið tekið í eldhúsinu líka


Þær Elínborg og Védís voru ánægðar með kvöldið eins og allir aðrir

Á gamlársdagskvöld var kveikt í brennu á Bíldudal eins og ávalt. Brennan er nú höfð fram við Völuvöll en nokkur ár eru síðan síðast var brennt á Byltuhlíð. Björgunarsveitin Kópur var með mjög góða flugeldasýningu og sungin voru nokkur lög. Veðrið var mjög gott og naut fólk vel. Eins og sjá má á myndunum er flugeldasýning orðin mikið mannvirki, útbúinn er skotpallur á dráttarvélarvagni þar sem allar bomburnar eru tengdar saman. Stærstu bomburnar sem skotið var upp að þessu sinni voru þrjár 24 tommu, 25 kg. Þungar. Þær minni voru samtals 130 ásamt nokkrum tertum og fallhlífarflugeldum og blisum. Sýningin var því viðamikil og tilkomumikil í góða veðrinu.

Takk fyrir Kópsmenn.



Vísnakvöld í Baldurshaga Bíldudal 29. desember 2006.

Jólaball í Baldurshaga 27. desember 2006.

Jólaballið 2006 tókst með ágætum, margt var um manninn og þeir mættu sveinkarnir eins og vera ber. Að loknum söng og dansi fengu allir sé heitt súkkulaði og kökur. Já bara fínt jólaball og gaman að sjá hve margir njóta þessarar skemmtunar. Við skulum kíkja á nokkrar myndir.


Það er alltaf gaman að dansa í kringum jólatréð


Jólasveinarnir mættir á svið


Sungið með þeim og hlustað á þá


Svo er tekinn einn eða tveir hringir


Já það er gaman að hafa þá með og halda í höndina á þeim


Það þarf líka að tala við mömmu


Svo er það nú, hvað er í pokanum


Já kannski fæ ég poka


Er hann nokkuð að verða tómur


Svo er nú ekki verra að fá mynd af sér með jólasveininum


Það er svolítið mikið skegg, en ég held að þetta sé í lagi


Það er ekki nema í tíma sé tekið, hverjar skyldu óskirnar vera í skóinn á næsta ári.

Alltaf gaman á jólaballi.

Þorláksmessa á Bíldudal.

Í hádeginu á þorlák var boðið upp á skötuveislu hjá þeim hjónum Helgu og Hannesi á Veitingastofunni Vegamótum eins og oft áður. Þeir bræður Mattías og Gísli Ægir Ágústssynir spiluðu og sungu á meðan gestir snæddu skötuna af bestu lyst. Einnig lásu þau hannes og Helga upp úr nýútkominni ljóðabók Þórarins Hannessonar, “Æskumyndir”. Ljóðabókin fjallar um minningar Þórarins frá bernskuárunum á Bíldudal.

 











Já og þegar kvölda tók mátti sjá á vappi á Bíldudal Jólasveina, þeir voru greinilega að heimsækja krakkana á Bíldudal og náðist af þeim myndir þar sem þeir voru að koma að Þórshamri. Sveinkarnir voru hinir kátustu og með poka með sé en hvað var í þeim veit engin nema börnin.



 

Jólatónleikar leikfélagsins Baldurs fóru fram föstudaginn 22. desember í Baldurshaga Bíldudal. Tónleikar þessir eru nú orðnir fastur liður í aðdraganda jólanna hér á Bíldudal. Á borðum var heitt súkkulaði og piparkökur og ekki var dagskráin af verri endanum. Má með sanni segja að tónleikarnir tókust afar vel og voru vel sóttir þó ekki hafi verið húsfyllir. 


Hannes Friðriksson setti tónleikana með stuttu ávarpi


 og síðan las séra Sveinn Valgaeirsson sóknarprestur Bíldudals og Tálknafjarðar jólasögu. 


Að lokinni jólasögunni hófst söngdagskráin með því að börnin á leikskólanum Tjarnarbrekku fluttu nokkur lög.
Á myndinni talið frá vinstri eru: Elínborg A Benediktsdóttir fóstra, Tómas Henry Arnarsson, Veronika Karen Jónsdóttir, Sylvía Björt Jónsdóttir, Jóna Krista Jónsdóttir, Aníta Sól Valdimarsdóttir og Lára Þorkelsdóttir fóstra. Leikskólabörnin sungu lögin; Jólasveinar ganga um gólf, Adam átti syni sjö, Í skóginum stóð kofi einn, Jólasveinar einn og átta og Skín í rauðar skotthúfur.


Næst á svið stigu á svið Flautusveitin sem jafnframt er stúlknakór. Þannig háttar til að þær ásamt Alex Maron Einarssyni eru í tónlistaskólanum og fara tímar jafnan þannig fram að fyrst er tekin æfing á flautu, síðan er spilað svolítið á píanó og síðan sungið. Ekki bar á öðru en þarna komi efnilegir nemendur fram og mikill áhugi á tónlistinni í öllum hópnum. Talið frá vinstri eru; Viktoría Líf Ingibergsdóttir, Auður Ír Viðarsdóttir, Sandra Líf Pálsdóttir, Lofvísa Rut Jónsdóttir, Birna Sólbjört Jónsdóttir og Alex Maron Einarsson sem spilaði undir á gítar ásamt Ragnari Jónssyni. Fyrst fluttu þau á flautu og með undirspili gítars og píanós lögin; Rokklingarnir, Klukkur og Klukknahljómur, 


síðan sungu stúlkurnar lögin; Bjart er yfir Betlihem, Skín í rauða skotthúfu, Meiri snjó, meiri snjó, Ég sá mömmu kyssa jólasvein.


Að loknum flutningi nemenda tónlistarskólans kom Ágústa Mattý Pálsdóttir á svið og las jólasöguna Tilgangur jólanna, að loknum lestri flutti Ágústa frumsamið ljóð eftir sig sem hún nefnir, “Mín stóra ósk”

Mín stóra ósk

Jólin eru að koma , gamanið byrjar þá
Fólk kemur hvaðan af til að vera með þeim
Sem maður elskar, til að eyða hátíðarhöldum með fjölskyldunni,
hér er mín stóra ósk,
enginn þarf að deyja,
allir hafa vini
og ástin endar aldrei, 

það er mín stóra ósk.

En ekkert er fullkomið ekki einu sinni
Jólin, en jólin þurf ekki að vera
Fullkomin, bara að við höfum einhvern
Til að eiða jólunum með, 

Það er mín stóra ósk.

Ágústa Mattý Pálsdóttir

Virkilega gott ljóð Ágústa og ættu margir að taka innihald þess til íhugunar.




Næst var það Veronika Karen Jónsdóttir sem steig á stokk, Veronika er fimm ára og hafði einstaklega skemmtilega framkomu og var mjög sviðsörugg. Ekki er vafi á að við eigum eftir að njóta söngs hennar í framtíðinni. Veronika söng lagið Skín í rauða skotthúfu og var vel fagnað að loknum söng.


Gísli Ægir Ágústsson var næstur á svið og með honum til undirleiks voru Alex Maron Einarsson á gítar og Ragnar Jónsson á píanó. Gísli Ægir söng lögin; Blue Cristmas og Í bljúgri bæn. Gísli Ægir er ákaflega líflegur flytjandi og hefur mjög skemmtilega og góða sviðsframkomu ásamt því að vera góður söngvari.


Á eftir Gísla Ægir var það okkar ástsæli stórsöngvari Jón Kr. Ólafsson og flutti hann okkur lagið Hvít jól með undirleik Ragnars Jónssonar. Ekki bregst hann Jón Kr. okkur og á hann miklar þakkir skilið í gegnum tíðina fyrir flutning sinn.


Síðust var það formaður Leikfélagsins Baldurs, Guðbjörg J Theódórs sem kom upp og söng lögin Jólin, jólin og Hátíð í bæ. Guðbjörg söng afskaplega fallega og er hún söng lagið Hátíð í bæ mátti sjá tár í hvarmi, svo innilega var sungið.


Að lokum komu allir flytjendur á svið og allir sungu saman Heims um ból.


Ragnar Jónsson við píanóið

 
ein og sjá má ver margt um mannin á tónleikunum. 

Á tónleikunum las Hannes Friðriksson upp eftirfarandi bréf sem jafnframt var tilkynning um úthlutun úr styrktarsjóðnum Hanneságústörn

HANNESÖRNÁGÚST – STYRKTARSJÓÐUR

Styrktarsjóðurinn HANNESÖRNÁGÚST er nefndur eftir Bílddælsku leikurunum, Ágústi Gíslasyni, Hannesi Friðrikssyni og Erni Gíslasyni. Tilgangur sjóðsins er að efla leiklistarmenntun á Bíldudal. Heimili og varnarþing sjóðsins er á Bíldudal. Sjóðurinn var stofnaður 26. apríl 2006 í Baldurshaga á Bíldudal. Stofnandi sjóðsins er Kómedíuleikhúsið og Elfar Logi Hannesson. Styrktarfé er fengið frá Kómedíuleikhúsinu og einnig frá einstaklingum og fyrirtækjum.

Fyrsta úthlutun desember 2006: 
Á vordögum verður haldið námskeið í framsögn í grunnskólanum á Bíldudal og í Baldurshaga fyrir félaga í Leikfélaginu Baldri sem og annarra Bílddælinga. Kennari er Sigurður Skúlason, leikari, sem er löngu þjóðkunnur fyrir leik sinn á leiksviði og í kvikmyndum. Rödd hans þekkja margir enda er hann einn af okkar allra bestu lesurum í hljóðvarpi. Nánari tímasetning á námskeiðinu verður kunngjörð þegar nær dregur vori.

Kær Jólakveðja,

Stjórn Hannesörnágúst

Hannes Friðriksson, Örn Gíslason, Ágúst Gíslason, Elfar Logi Hannesson



Laugardaginn 16. desember var föndurdagur á Leikskólanum Tjarnabrekka á Bíldudal. Foreldrar og krakkarnir voru að búa til jólaskraut og fleira en á eftir fengu allir sér kökur og súkkulaðidrykk. Hér koma nokkrar myndir frá deginum










Sunnudaginn 10. desember var hið árlega Hangikjötskvöld svo nefnda haldið í Baldurshaga.
Þannig er, að líklega í yfir 20 ár hafa komið saman fullorðnir menn á Bíldudal og borðað saman hangikjöt. Tilgangurinn er að eiga saman gott kvöld, borða hangikjöt og á stundum syngja svolítið nú og segja skemmtilegar sögur. Eitt er ávalt fast á dagskrá; Formaður hangikjötsfélagsins Ágúst Gíslason fer yfir ársskýrslu félagsins og Guðmundur Sævar Guðjónsson les úr jólaguðspallinu og allir fara saman með Faðirvorið.
Á stundur eru kynningar eða eitthvað annað fróðlegt að loknu borðhaldi. 
Hangikjötið í ár var ljúffengt enda reykt af meistaranum Gunnari Valdimarssyni, en hann hefur séð um þann þátt undanfarin ár.

Sjá má hér nokkrar myndir frá samsætinu og eins og sjá má var þetta einkar vel lukkað kvöld.


Formaður Hangikjötsfélagssins setur fund og flytur ársskýrslu


Guðmundur Sævar Guðjónsson les jólaguðspjallið


Hangikjötið fært upp úr pottunum, já fallegt er það


Gunnar Karl er sérstakur spesíallisti í grænu baununum og uppstúfinu


Já þá er borðhald hafið og hangikjötið er afar gott þetta árið, takk Gunnar Vald.


Svo er að taka lagið.


Gamlir skipsfélagar að spjalli, víst ekki í sama flokki

Eins og fyrr er greint frá er á stundum flutt erindi nú eða haldnar kynningar á hangikjötskvöldum.
Að þessu sinni var haldin sýning á nokkrum hjálpartækjum sem einn Bílddælingur hefur fundið upp. Þannig er að nokkrir Bílddælingar eru að vinna fjarri heimabyggð. Vinna þeir flestir við akstur stórra vinnuvéla sem helst ekki mega stoppa. Einn af þessum ágætu mönnum hefur fundið upp hjálpartækin sem nýtast vel við þær aðstæður sem þessir fjarvinnandi Bílddælingar vinna við því ekki þýðir að stoppa þó náttúran kalli. 



Fyrsta tækið er reyndar fyrir þá sem eru orðnir framsettir og sjá ekki þann sem þeir halda mest upp á. Tækið er sett á fótinn fyrir ofan ökla og spegillinn stilltur þannig að til vinarins sjáist.


Hér má sjá tækið í nærmynd.


Þessi búnaður er tvíþættur, um hálsinn er salernisrúlluhaldari, nauðsynlegur þegar bregða þarf sér út í náttúruna í flýti. Neðri búnaðurinn skýrir sig kannski sjálfur, við hann er slanga sem stinga má ofan í flöski nú eða út um gluggan á vörubílnum ef manni verður mál.


Ekki eru allir starfsmennirnir karlkyns, þessi búnaður er fyrir kvennkynið og skýrir sig kannski sjálfur, við hann má tengja slöngu eins og við búnað karla.


Hér má sjá búnaðinn saman, nú er bara að hefja fjöldaframleiðslu en hún mun í undirbúningi.


Já það er gamað að þessu.


Já svo var sungið og spilað af innlifun


það má segja að þarna hafi verið myndaður karlakór, bara ágætur kór.


ÁRSHÁTÍÐ LEIKFÉLAGSINS BALDURS2. DESEMBER 2006. 

Já Desinn er búinn og tókst vel að sögn þeirra sem þar voru. Því miður var umsjónarmaður síðunnar ekki á hátíðinni þannig að þið fáið ekki að sjá myndir nema einhver sendi mér myndir. Leiksýningin tókst mjög vel og maturinn var góður að ekki sé minnst á sósuna. Hljómsveitin var víst dálítið hávær og fækkaði víst fljótt á dansgólfinu en það voru allir ánægðir er heim var komið.


Söngur og dans æfður
































 

Um tíu leikarar munu taka þátt í sýningunni og eru æfingar hafnar

Leikstjórinn Elvar Logi Hannesson

_Á_FÖRNUM_VEGI.ppt

Leikfélagið Baldur hélt Jólatónleika miðvikudaginn 21. desember. Tónleikarnir voru vel sóttir og flytjendur stóðu sig með mestu prýði. Hér má líta myndir og efnisskrá tónleikanna.

Jólatónleikar_Leikfél._Baldurs_2005.ppt 

Sólarkaffi Kvenfélagsins Framsóknar var haldið í Baldurshaga sunnudaginn 18. febrúar. Sólarkaffi er haldið til að fagna þess að annan febrúar sjá Bílddælingar sólina í fyrsta skipti á nýju ári, það er ef veður leyfir. Sólin sást í ár þann fjórða febrúar og er því gerð skyl hér á síðunni. Sólarkaffið í ár var að vanda glæsilegt og meðlæti með kaffinu ákaflega gómsætt. Það færist dálítið í vöxt að nágrannar okkar frá Tálknafirði og Patreksfirði komi í sólarkaffið til okkar á Bíldudal. Leikskólabörnin sungu að vanda fyrir kaffigesti og er ávalt gaman að sjá þau á sviði þar sem þau stíga sín fyrstu skref við að koma fram opinberlega. Þegar gestir höfðu fengið sér kaffisopann var spilað Bingó þar sem vinningar voru veglegir og fengu margir vinninga.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir