ENGLISH
mánudagurinn 6. september

Ketildalir

 

Ketildalir eru dalirnir vestanvert í Arnarfirði, frá Bíldudal og út úr.

Fyrstur er Auðihrísdalur, þar voru kot áður fyrr en á seinni tímum hefur ekki verið

byggð þar. Dalurinn er frekar hrjóstugur og lítið jarðnæði en djúpur er hann og stendur

nokkuð hátt.

Næstur dala er Hvesta sem er grösugur dalur með sandströnd. Þar hefur verið búið frá

landnámi og er þar enn myndarlegt fjárbú og Hvestuá virkjuð til raforkuframleiðslu. Í

Hvestu eru tvær jarðir, Hvesta og Neðri Hvesta. Dalurinn er ákaflega fallegur með háum

fjöllum og vogskorinni strönd.

Þá kemur næst Hringsdalur þar sem Hringur nam land og féll í orustu við Austmann. Í

Hringsdal er sumarbústaður, virkilega falleg vin þeirra sem þar una sér löngum stundum.

Bakkadalur kemur næstur Ketildala og eru þar jarðirnar Grænahlíð og Feigsdalur, báðar

í rækt og með bústofn sem tilheyrir Grænuhlíð. Í Bakkadal er að byggjast upp sumarbústaðalönd

sem eiga eftir að dafna vel í fallegum dal með sandströnd og æðavarpi.

Austmannsdalur kemur þá næstur en þar nam Austmann land og barðist síðar við Hring í

Hringsdal. Austmannsdalur er ekki stór af ræktarlandi og hefur verið frekar hrjóstugur,

þar er ekki búið lengur.

Fífustaðir er þá næstur, stór og grösugur dalur en án bús nú sem stendur. Þar eru sumarbústaðir

en hér áður var stórt fjárbú þar og þótti gott land til búsetu.

Þá er næstur Selárdalur, bújarðir voru þar margar og útræði mikið. Í Selárdal sat prestur

sem þjónaði víða, meðal annars í Tálknafirði. Góð gönguleið er þar á milli sem áður var

prestsleið viðhaldin af bændum Ketildala. Safn Samúels Jónssonar, listamannsins með

barnshjartað, ótrúlegs elju og vilja. Heill ævintýraheimur hugans og trú fullorðin manns

sem lét drauma sína rætast þó á móti blési. Nú er að byggjast upp sumardavalarstaður í

Selárdal þar sem gömul hús taka á sig upprunalegt horf og bæta við sig nýjum lífdögum.

Ekki megum við gleyma Gísla á Uppsölum sem undi sér vel í dalnum og naut lífsgæða

náttúrunnar.

Verdalir tveir eru síðan síðastir Ketildala, þangað er afskaplega gaman að ganga og njóta

kvöldsólarinnar og sólseturs þar sem fjöllin taka á sig rauðan blæ og kyrrðin er

allsráðandi.

Já Ketildalir er heill heimur frábærrar náttúru og sögu mannlífs og lista.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir