ENGLISH
mánudagurinn 6. september

Dynjandisfoss við Dynjandisvog

Fossinn Dynjandi er við Dynjandisvog inn af Borgarfirði, sem er  norðan Langaness í Arnarfirði. Mjólkárvirkjun er við Borgarfjörð að Borg. Dynjandisvogur er einn veðursælasti staður á norðurhveli, afgirtur fjallahring og skartar fallegasta fossi á Íslandi. Gönguleið er upp að fossinum og er magnað að standa nánast upp við hann þar sem hann fellur niður í gljúfrið. Neðan við Dynjanda eru fimm minni fossar sem hver um sig hefur sinn sjarma, þeir heita fyrstur neðan við Dynjanda Hundafoss, Strokkur, Göngumannafoss en bakvið hann er hægt að ganga, Hrísvaðsfoss og Sjóarafoss. Dynjandi sjálfur er um 100 metra hár og efst er hann 30 metra breiður en neðst um 60 metra.

Við Dynjanda er tjaldsvæði og að hausti er þar gott berjaland. Við Dynjanda er ákjósanlegur áningastaður og aldrei að vita nema að það bíti á ef rennt er fyrir fisk í ánni.

Dynjandisfoss

 


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir