Við höfum nú tekið upp samvinnu við nýtt fyrirtæki sem sérhæft hefur sig í ferðaskipulagningu og leiðsögn um sunnanverða Vestfirði. Á heimasíðu þeirra www.umfar.is má sjá margvíslegar ferðir sem áhugavrt er að skoða.

Já það eru margar gönguleiðir á sunnanverðum Vestfjörðum. Við höfum til sölu göngukort af svæðinu og svo eru einnig gönguleiðir sem ekki eru merktar inn á kort en hægt að ráðleggja með.
Leiðir eins og Selárdalur / Krossadalur / Sellátrar, Lambeyrarháls / Patreksfjörður, Bíldudalur / Tálknafjörður um Tunguheiði eru vinsælar. Einnig er gönguleið upp á Byltu, fjallið á móti Bíldudal sem er vörðuð og varða með bók í upp á fjallinu. Viða er hægt að fara í gönguferðir í fjörunni eins og milli Hvestu og Hringsdals út í Pétursvör og svo ströndin frá Litlalaugardal og út að Arnarstapa í Tálknafirði, frábær staður til að fara með alla fjölskilduna í fjöruferð.
Hafið samband og það er hægt að gefa góð ráð og svo ferjum við líka milli staða á sjó og landi.
jon@bildudalir.is 354-894-1684
Jón þórðarson