Sýning Diddu frá Láganúpi Kollsvík opnaði í lok júlí. Didda sýndi verk máluð á stein og einnig málverk. Sýningin var afar vel sótt og þótti góð. hér eru nokkrar myndir frá opnuninni.
Sigríður Guðbjartsdóttir (Didda frá Láganúpi) er fædd á Lambavatni, Rauðasandi, þann 5. ágúst, 1930, dóttir hjónanna Guðbjartar Egilssonar og Halldóru Kristjánsdóttur, bænda þar.
Eftir hefðbundið barnaskólanám lá leiðin að héraðsskólanum Núpi í Dýrafirði, þaðan sem hún lauk gagnfræðaprófi.
Fljótlega að því loknu kynntist hún Össuri Guðbjartssyni, búfræðingi og hófu þau búskap að Láganúpi í Kollsvík, þar sem búskapur og uppeldi 5 stráka varð hennar aðalstarf, ekki síst þar sem mikil félagsstörf, allskonar, hlóðust á bónda hennar. En þrátt fyrir miklar búannir blundaði þráin til listsköpunar, þær fáu stundir sem gáfust frá bústörfum.
Þekktastar eru steinamyndir Diddu, þar sem hún málar andlitsmyndir, landslagsmyndir, myndir af sveitabýlum, úr þjóðsögunum og annað myndefni sem áhugasamir listunnendur hafa haft áhuga á að fá unnið í steinhellurnar hennar Diddu, sem einar og sér eru listaverk íslenskrar náttúru. Einnig hefur Didda teiknað og skorið út í tré, svo að fátt eitt sé nefnt í þörf hennar til að skapa.
Didda er dæmigerð alþýðulistakona, sem drakk listþörf sína með móðurmjólkinni og hefur nýtt sér umhverfi sitt, fegurð landsins og söguna, eins og hún skynjar hana, fyrir sköpunarþrá sina.