12. júlí var haldinn consertinn "DENSE TIME" The Duo Guðlax í Gallerie Dyjanda. Consertinn hófst um miðaj dag og stóð fram yfir miðnætti. Flytjendur voru þeir Guðlaugur Kristinn Óttarsson og Einar Arnaldur Melax sem léku á strengjahljóðfæri og flautu. Óhætt er að segja að consetrinn hafi tekist frábærlega vel og kom töluvert af fólki inn af götunni til að hlíða á nokkur lög í senn.



Gestir tókum þeim félögum afar vel og fannst mikið til koma og áttu alls ekki von á slíkum viðburði hér á Bíldudal. Þeir félagar ætla að staldra við í einn eða tvo daga og taka upp nokkur lög hér á Bíldudal svo aldrei er að vita nema að Gallerie Dynjanda verði getið á plötuumslagi síðar meir. Þess má geta að í tilefni consertsins sömdu þeir félagar nýtt lag er hefur fengið nafnið Dynjandi og var það frumflutt um kvöldið, afar kraftmikið lag.