ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Gallerie Dynjandi Bíldudal

Gallerie Dynjandi opnaði fyrsta júní í Edenborgarhúsinu á Bíldudal með yfirlitssýningu á verkum Óskars Magnússonar frá Bíldudal.

Helstu markmið Gallerie Dynjanda er að skapa aðstöðu fyrir listamenn og unnendur listar. Stuðlað verður að því að fá til Bíldudals listamenn og aðstoða þá við listsköpun sýna. Að haldnar verði sýningar á listaverkum og öðrum þeim þáttum sem skapa ánægju og fróðleik.

12. október 2008.

Það sem er á dagskrá í vetur er eftirfarandi. Dagskráin kann þó að  breytast í tíma og rými eftir atvikum.

í lok október er fyrirhuguð ljósmyndasýning á ljósmyndum eftir Hafdísi Húnfjörð frá Tálknafirði á vetrarmyndum sem teknar eru á sunnanverðum Vestfjörðum. Sýningin verður með þeim hætti að á veggjum verða nokkrar myndir sem verða til sölu en aðal sýningin felst í skjávarpasýningu og fjallað verður um hverja mynd og þá myndefni sjálft. Sýningarnar verða einstakar í tíma þannig að fólk getur komið og tekið þátt í umfjölluninni. Áætlað er að sýna þrisvar á Bíldudal en sýningin fer síðan til Ísafjarðar, Akureyrar og Reykjavíkur í vetur. Eitt af markmiðum sýningarinnar er að kynna sunnanverða Vestfirði að vetri.

Næsta sýning er síðan ráðgerð seinnihluta janúar 2009. Er þar um að ræða jarðfræði og jarðfræðisögu sýningu á vegum Náttúrustofu Vestfjarða. Er hér um farandsýningu að ræða sem sérstaklega er ætlum að höfða til fræðslu og þá einnig til grunnsólanema svæðisins.

Áhugi er fyrir að setja upp hannyrðasýningu og eru slíkir aðilar hvattir til að hafa samband svo og þeir sem hafa fram að færa list í breiðum skilningi.

Næsta sumar er von á myndlistakonu frá Spáni og vonandi koma fleiri inn í vetur en frá því verður sagt nánar síðar.

 


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir