ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Smalinn siglandi.

 

 

Í haust og vetur hefur verið farið í þrjár smalaferðir sjóleiðina um Suðurfirði Arnarfjarðar. Vel hefur gengið að ná fénu en það hefur verið gert með því að smalar og smalahundar hafa verið settir á land þar sem sauðfé sést.

 

 

 

Síðan hafa kindurnar verið teknar um borð í bát og síðan settar aftur á land þar sem bílar með kerrur hafa komist að. Í haust og vetur hefur verið heimt með þessum hætti um 60 kindur frá Steinanesi inn í Langabotn og fyrir Ófærunes og inn í Trostansfjörð.

 

 

Síðasta ferðin var farinn var farinn á gamlársdag í blíðskapar veðri en í þeirri ferð heimtust 24 kindur. Ótvírætt er að mikill tímasparnaður er af því að hafa þennan háttinn á og svo er bara gaman að smala með þessum hætti.

 

 

Í síðustu ferðinni var búið að hóa saman smá hóp í fjörunni og til stóð að fara að teyma kindurnar um borð í slöngubátinn, en þá tóku einar fjórar kindur sér til og stukku út úr hópnum og þrjár þeirra stukku um borð í slöngubátinn en þeirri fjórðu verð fótaskortur á slöngunni og lenti í sjónum, en bíðið við hún reyndi í annarri tilraun og var þá hjálpað smá til að komast um borð.

 

 

Bátsmanninum varð á orði, verðið velkomnar um borð dömur mínar. Kannski er hann bara kvenna gull, minnsta kosti kindagull.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir