ENGLISH
mánudagurinn 6. september

Á söguslóð Gísla Súrssonar í Arnarfirði

Sigling með Höfrungi BA 60 

 

Siglt er yfir fjörðinn sem leið liggur  að Steinanesi þar sem systir Jóns Sigurðssonar

forseta bjó. Siglt áfram inn með landinu og framhjá Krosseyri en þar hafa sæskrímslin sést einna oftast. Ef við erum heppin  svífur Haförn meðfram fjöllunum, en algengt er að sjá  tignarlegan fuglinn  nýta sér uppstreymið til að svífa um loftin blá.

Innan við Krosseyri er talið vera helsta búsvæði sæskrímsla og förum við með ykkur í smá flugferð yfir hafsbotninn þar sem búsvæði þessara náttúruundra sjást greinilega. Á leiðinni inn í Geirsþjófsfjörð látum við hugann reika til fyrri tíma og njótum landsýnar og sjáum landslagið og gróðurfarið breytast ótrúlega hratt.

Nú er lagst fyrir akkeri og allir fluttir í land með þægilegum og öruggum léttabát sem hlotið hefur nafnið Faxi en báturinn er nefndur í höfuðið á einu  af skrímslum Arnarfjarðar

Þegar í land er komið er lagt af stað í gönguferð sem tekur um eina og hálfa til tvær klukkustundir. Þetta er  létt ganga með mörgum sögustoppum þar sem saga Gísla og Auðar er rifjuð upp, staðir eins og bær Auðar, Fylgsnið, Kleifin og Einhamar eru heimsóttir og sagan verður nánast lifandi.

Örlög þessa manns sem kom til Íslands sem útlagi frá Noregi og varð síðan útlagi á Íslandi, er ein af áhrifaríkustu sögum áranna eftir landnám.

Takið með ykkur nesti því það er tími til að setjast niður og fá sér næringu.

Síðan er haldið til skips á ný og siglt heim á leið til Bíldudals. Á leiðinni er ekki úr vegi að spjalla aðeins um fjölbreytt lífríki Arnarfjarðar, rækjuna, skelfiskinn og svo ótalmargt annað sem fróðlegt er að hugsa um eftir frábæra ferð um kyngilmagnaðan fjörð. Sjá verð og áætlun neðst á síðunni.

 Bókanir í síma 894-1684 eða á póstfáng jon@bildudalur.is

Leiksýning á söguslóðum Gísla Súrssonar

Sumarið 2010 ætlum við að halda áfram samstarfi við Kómedíuleikhúsið og mun Elvar Logi Hannesson sýna leikritið um Gísla Súrsson fjórum sinnum  í Langabotni. Siglt verður frá Bíldudal inn í Langabotn og genginn söguhringurinn þar til  gengið er fram á leikritið í skóginum og nestið snætt á meðan hlýtt er á þennan frábæra leikþátt. Elvar Logi túlkar söguna á sinn snilldarlega hátt úti í náttúrunni, í því umhverfi sem sagan gerðist fyrir meira en þúsund árum.

Það er hreint ógleymanlegt að koma á svona leiksýningu, vera búin að skoða söguslóðir  og sjá svo á eftirminnilegan hátt túlkun listamannsins á sögunni.

 

Ferðin er meira en bara leiksýning,  Arnarfjörður verður ykkur minnisstæður eftir þennan dag.

 

Leiksýningarnar verða á eftirtöldum dögum.

Föstudaginn .... 16. júlí og Laugardaginn .... 17. júlí.

Föstudaginn .... 30. júlí og Laugardaginn .... 31. júlí.

Verð fyrir leiksýningu á söguslóðum Gísla Súrssonar

 Brottför: kl. 11.00

Lengd ferðar: 7 kls.

Innifalið: Sigling, leiðsögn, leiksýning.

Lámark: 15 farþegar, Það þarf að bóka í ferðirnar með minnst dags fyrirvara.

Verð:

  1. Börn sem ekki eru byrjuð í Grunnskóla greiða ekki
  2. Börn á grunnskólaaldri, 4.500,-
  3. 67 ára og eldri, 7.500,-
  4. Fullornir, 8.500,-

Verð á söguslóðir Gísla Súrssonar

Siglt er frá 1. júní til 25. ágúst

Brottför: kl. 11.00, þriðjudaga, föstudaga, og sunnudaga ( Það kann að vera að ferðir falla níður vegna bókaðra ferða með hópa, í sumum tilfellum verður þá farið seinna um daginn. hafið samband og við formum tíma saman. )

Lengd ferðar. Sigling 2x60 mín. heildarlengd ferðar 6. kls.

Innifalið: Sigling og leiðsögn.

Lámark: 6 í ferð, það er alltaf betra að bóka í ferðirnar.

Verð:

  1. Börn sem ekki eru byrjuð í Grunnskóla greiða ekki
  2. Börn á grunnskólaaldri, 3.500,-
  3. 67 ára og eldri, 6.000,-
  4. Fullornir, 6.500,-


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir