ENGLISH
mánudagurinn 6. september

 

Gamalt vöfflujárn

 

Viðgerðir á Smiðjunni á Bíldudal ganga vel þrátt fyrir rysjótt tíðarfar. Unnið hefur verið að endurgerð gaflsins sem snýr niður að höfn og síðan er þakið á lokasnúning. Ýmislegt kemur í ljós þegar grúskað er í gömlu. Þar á meðal fundu menn forláta vöfflujárn. Á efri hluta er greinilegt að vöfflujárnið er með kórónu Kristjáns konungs á, líklegt er að það sé ættað, kannski úr konungsgarði. Gamalt er það allavega. Kannski vita einhverjir lesendur meira um vöfflujárnið og sendið þá póst á bildudalur@bildudalur.is

 

 

Endurnýja þurfti neðri gaflinn, Einar Guðmundsson mælir út og Jón S Bjarnason og Óskar Björnsson fylgjast með

 

 

 

 

 

 

Eins og sést á myndinni er kóróna í lokinu

 

 

Gaman væri ef einhverjir vissu deili á vöfflujárninu


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir