ATBURÐIR Á BÍLDUDAL
Á ári hverju er ýmislegt sem á sett er á dagskrá, sumt er hefðbundið eins og þorrablót, sólarkaffi og fl. Hér verður reynt að gera því skil.
Laugardaginn 6. febrúar er Þorrablót en það er Slysavarnardeild kvenna á Bíldudal sem sér um allan undirbúning og framkvæmd. Skemmtiatriði eru heimagerð og þar er gert góðlátlegt grín að náunganum með svolitlu rapporti liðins árs.
Sunnudaginn 15. febrúar er Sólarkaffi Bílddælinga. Þá fögnum við sólinni á nýju ári en hún sést fyrst á Bíldudal 4. febrúar. Á sólarkaffi syngja Leikskólabörn fyrir okkur og ýmislegt fleira til gamans gert. Það er Kvenfélagið Framsókn sem sér um sólarkaffið.
Um Páska er svo grímuball á vegum Leikfélagsins Baldurs, dagsetning birt síðar.
Sunnudaginn 7. júní er Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur með sjómannadagsleikum á hafnarsvæðinu, lögð eru blóm að minnisvarða um drukknaða og þar er helgistund. Að lokum er farinn grillferð í óbyggðir þar sem allir geta komið með, frábær ferð sem farin hefur verið í mörg ár.
17. júní eru hátíðarhöld í umsjón Kvenfélags Framsóknar, Það er sungið og ýmislegt fleira að lokinni skrúðgöngu. Á þeim degi er veðrið nær alltaf gott.
Síðustu helgina í júní annað hvert ár er hátíðin Bíldudal Grænar haldinn. Mikið Þorpshátíð þar sem leikið er á alls oddi og margir koma á staðinn og njóta samveru og margs annars.