Nýr prestur á Bíldudal
Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir sett inn í embætti sóknarprests Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalls af sr. Agnesi M. Sigurðardóttur prófasti Vestfjarðaprófastsdæmis sunnudaginn 18. janúar.

Sr. Agnes M. Sigurðardóttir til vinstri og sr. Ásta I. Pétursdóttir til hægri
Það var notaleg stund þegar innsetningin fór fram. Að lokinni innsetningu flutti sr. Ásta sína fyrstu ræðu úr predikunarstól Bíldudalskirkju. Að lokinni messu var boðið til kaffisamsætis í Baldurshaga þar sem Ásta Ingibjörg og fjölskylda var boðin velkominn til Bíldudals.