Á ferðalagi.
Áfram er ferðast með sýninguna “Bíldudalsstein, Vestfirðir að vetri”. Núna erum við stödd á Hólmavík eftir heilmikið ferðalag frá Akureyri þar sem við vorum síðast. Ferðalangarnir lentu í óveðrinu og tók um fimm tíma að aka frá Blönduósi á Hólmavík. Einu sinni festist bíllinn og svo fauk hann einu sinni til þannig að þversum var á veginum. En allt gekk vel að lokum og var vel tekið á móti hröktu sýningarliði. Sýningin á Akureyri tókst afar vel, og vel látið af. Viðtökurnar hér á Hólmavík eru líka afar góðar og mætti fjöldi fólks þegar opnað var í dag. Næst verður haldið á Ísafjörð en þar er opnun á laugardag kl. 13.00.
Í gærkvöldi var farið í heitapottinn á Drangsnesi, frábær ferð og upplifelsi að sitja í pottunum niður í fjöru með brimið sér við hlið, já og í roki og skafbil. Ekki var mögulegt að klæðast útivið í veðurhamnum og skelltu baðgestir sér því beint inn í bíl og ekið til góðra gestgjafa í þorpinu þar sem rjúkandi kaffi og meðlæti beið. Ófært var heim að húsinu og varð því að taka á sprett í gegnum snjóskaflanna, upp brekkuna sem var frekar brött, já fáklæddir voru baðgestir og óhætt er að segja að húsfreyjan hafi orðið undrandi á að sjá nánast nakið fólkið vaða snjóinn upp á mið læri til að komast í kaffið. Frábær upplifun og frábærar mótökur, takk fyrir Drangsnesingar. Ekki verða birtar myndir af því kvöldi, enda kannski ekki til.
.JPG?m380)
Það er eins gott að sjá veginn
.JPG?m380)
Nýkominn inn úr bylnum
.JPG?m380)
Þreyttar listakonur