Félagsmiðstöð Bíldudal
Félagsmiðstöð er nú tekin til starfa á Bíldudal. Það er Erla Rún Jónsdóttir sem sér um starfssemina en faðir hennar hefur ljáð húsnæði fyrir starfssemina í kjallaranum að Gilsbakka 2 til 4. Það er ungafólkið búið að koma sér fyrir og kemur saman tvisvar til þrisvar i viku til spilamennsku og annarra samkomna. Félagsmiðstöð hefur ekki verið starfrækt á Bíldudal um nokkurra ára bil þar sem Vesturbyggð hefur ekki séð ástæðu til að koma að slíkri starfssemi, en svo er ekki heldur nú.
Vel hefur gengið og er ungafólkið ánægt með aðstöðuna og starfssemina. Til lukku öll sömul.
