ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Nýr bátur til Bíldudals

 

Nú fyrir skemmstu kom nýr bátur til Bíldudals, Andri BA 101 skn. 1951 en það er Andraútgerðin ehf. sem er eigandi bátsins sem nú hefur hafið rækjuveiðar frá Bíldudal.

Andri BA 101 er um 36 tonna stálskip með nýlega brú, smíðaður í Svíþjóð 1984, innfluttur 1988 lögulegasti bátur og eru tveir menn í áhöfn, Snæbjörn Árnason og Jón Páll Jakobsson.

Það er því óðum að færast meira líf í útgerð frá Bíldudal. Þeir bátar sem nú eru gerðir út frá Bíldudal eru; Andri BA 101, Höfrungur BA 60, Brynjar BA 128 en þeir eru allir á rækju sem stendur, Selma Dröfn BA 21 sem er á línu og Þorsteinn BA 1 sem er á dragnót. Fimm bátar samtals og svo bætast við þrír sjóstangveiðibátar með vorinu.

Það er því stundum líflegt við höfnina á Bíldudal.

 


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir