ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Skipasmíðar

 

Nú er verið að breyta og bæta bát í kjallara Edinborgarhússins á Bíldudal. Bátinn á að nota til að ferja ferðafólk í land úr Höfrungi BA 60 sem mun sigla inn í Geirþjófsfirði á sumri komanda. Báturinn er lengdur um rúma tvo metra og sett landgöngubrú framan á hann svo auðveldara verður að taka land og komast um borð.

 

 

 

Ekki er enn komið nafn á fleyið sem verður tæpið átta metrar á lengd og mun ekki væsa um  Ágætar bókanir eru í ferðir á Arnarfjörð þar sem boðið er upp á sjóstöng, siglingu inn á Geirþjófsfjörð og leiðsögn um sögusvið Gíslasögu Súrssonar, svo er líka stundum brugðið upp sjávarréttagrilli í ferðinni. Já sálin og líkaminn fá sína næringu í sumar á Arnarfirði, það er nokkuð víst.

 

100_2767.MOV


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir