Varðskip á Bíldudal
Varðskipið Ægir lagðist að bryggju hér á Bíldudal í gærmorgun en skipið og önnur stærri þyrla Landhelgisgæslunnar höfðu daginn áður verið að æfingum á Arnarfirði. Seinnipartinn í gær kom svo minni þyrla Gæslunnar og lenti við íþróttahúsið Byltu þar sem skipherra Ægis var að fara í frí og annar að taka við skipstjórn. Þyrluflugið tvo daga í röð hefur að vonum vakið athygli bæjarbúa sem fjölmenntu þegar þyrlan lenti svo í gærkvöldi. Það er gaman og gott að finna fyrir því öryggi sem starfsmenn og tæki Landhelgisgæslunnar veita með starfssemi, þjálfun og búnaði sínum. Gangi ykkur allt í haginn gæslumenn og gleðilega páska.

Ægir við bryggju á Bíldudal

Hreggviður Símonarson, til vinstri og Henning Þór Aðalmundsson, til hægri

Talið frá vinstri, Andri Jóhannsson aðstoðarflustjóri, Daníel Hjaltason flugvirki, Kristján Þór Jónsson skipherra, Henning Þór Aðalmundsson sigmaður, Sigurður Ásgeirsson flugstjóri.
100_2779.MOV Þyrlan TF EIR ný lent
100_2784.MOV Ægir við bryggju
100_2790.MOV Þyrlan tilbúin til brottfarar
100_2791.MOV Þyrlan gangsett, því miður náðist ekki þegar hún tók á loft.