ENGLISH
mánudagurinn 6. september

Léttbáturinn af MS. Maríu Júlíu

 

Á mánudag og þriðjudag var unnið að því að ná upp flakinu af léttbát Maríu Júlíu fyrrum björgunar og varðskipi Íslendinga. Léttbáturinn var notaður fyrrum sem heitur pottur í Tálknafirði og var orðinn grófin niður í jarðveginn. Til stendur að taka af flakinu skapalón og mæla upp svo seinna megi smíða nýjan bát. Eins og alþjóð veit stendur til að endurbyggja Maríu Júlíu og færa í upprunalegt form. Það voru þeir frændur Jón Þórðarson frá Suðureyri við Tálknafjörð og Víðir Guðmundsson frá Felli í Tálknafirði sem stóðu að uppgreftrinum og þeim til aðstoðar komu Aðalsteinn Magnússon einn frændinn í viðbót ásamt Níelsi Ársælssyni en þess má geta að Níels reri þessum bát á sínum tíma til rauðmagaveiða.

 

Þarna er verið að byrja að grafa innan úr bátnum

 

Víðir Guðmundsson

 

Tekið skapalón við band

 

Þarna skoða Níels og Aðalsteinn pening sem fannst við uppgröftinn, hálft penny slegið 1954

 

Flottur peningur og táknrænn

 

Jón mokar undan kjölnum

 

Nú er seinni helmingurinn tilbúinn til að draga upp úr

 

Stolt siglir fleyið

 

Hvað er fyrir stafni

 

Nokkrar hreyfimyndir

 

100_2804.MOV

 

100_2809.MOV

 

100_2817.MOV

 

100_2825.MOV


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir