Heimildamyndir frumsýndar, gróska í kvikmyndagerð,
Frumsýning á heimildarmyndum verður í Skjaldborgarbíó þann 16. maí, laugardag kl. 15.00. Það er framhaldsdeild FSN á Patreksfirði sem heldur kvikmyndahátíðina. Nemendurnir munu sýna myndir sem þau hafa verið að gera í vetur í áfanganum heimildamyndagerð 103. Öllum áhugasömum er velkomið að koma og líta á afrakstur vetrarins, fróðlegt og gaman.