ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Frumsýning

Frumsýning á leikverkinu Umhverfis Bíldudal, Bíldudals Bacalao verður fimmtudaginn 4. júní klukkan 17.00. Leikverkið er flutt í tilefni 155. árstíðar Péturs Thorsteinssonar en Pétur var fæddur þann 4. júní 1854. Í ár eru einnig 80 ár frá andláti Péturs sem hefur oft verið nefndur faðir Bíldudal.

 

Það er Leikfélagið Baldur sem stendur að sýningunni, höfundur og leikstjóri er Elfar Logi Hannesson og nemendur Grunnskóla Bíldudals eru leikendur.

Sýningin er leikræn skoðunarferð um Bíldudal, áð er á sögustöðum sem tengjast Pétri Thorsteinssyni og sagan rifjuð upp. Upphaf leikverksins er á planinu við Veitingastofuna Vegamót og berst síðan eins og áður er getið um þorpið og eru því leikhúsgestir beðnir að klæða sig eftir veðri og vera tilbúnir að rölta með. Aðgangseyrir er enginn.

Mætum á frumsýningu 4. júní kl. 17.00 klædd eftir veðri.

Myndir teknar við æfingar

 

Næsta sýning er svo 17. júní og á Bíldals grænum.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir