ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Skrímslasetrið á Bíldudal

 

Í þættinum Út og suður sunnudaginn 21. júní heimsækir Gísli Einarsson skrímslakarla á Bíldudal og fylgist með uppbyggingu Skrímslasetursins. Þátturinn er í raun lítil heimildarmynd um uppbyggingu skrímslasetursins og þá sérstaklega mannlega, - og samfélagslega þáttinn, sem er ekki síst sérstaða þessa verkefnis.  Sjónvarpsmenn fóru með skrímslakörlum í vinnuferð á Bíldudal í október í fyrra og aftur nú í maí.

 

Mörg af þekktustu sjóskrímslum íslenskrar landhelgi eiga lögheimili í Arnarfirði. Þar hafa sjófarendur komist í kynni við fjöldann allan af torkennilegum og ógnvekjandi lífverum í gegnum aldirnar og sennilega eru hvergi til fleiri lýsingar sjónvarvotta af sjóskrímslum af ýmsu tagi. Það er því vel við hæfi að við Arnarfjörðinn, nánar tiltekið á Bíldudal, er verið að koma upp sérstöku skrímslasetri.

 

Það eru brottfluttir Bílddælingar sem eiga veg og vanda af stofnun safnsins en þeir, ásamt núverandi Bílddælingum, hafa byggt upp þetta magnaða skrímslasetur, mestan part í sjálfboðavinnu. Við fylgjumst með skrímslaáhugamönnum að störfum og fræðumst um skrímsli bæði á sjó og landi. Þótt skrímslin sjálf séu mögnuð er þó ekki síður magnað að sjá hverju samtakamáttur og sköpunargleði getur komið til leiðar. Rætt er við fjölda þeirra sem koma að uppbyggingu safnsins, meðal annars Valdimar Gunnarsson, formann skrímslafélagsins, menn sem séð hafa skrímsli með eigin augum og skrímslafræðinginn Þorvald Friðriksson sem um langt árabil hefur safnað skrímslasögum.

 

Sýndur: sunnudagur 21. júní 2009 kl. 19.35.

Endursýndur: 22. júní 2009 kl. 18.25; 24. júní 2009 kl. 16.05; 27. júní 2009 kl. 13.40

 


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir