ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Ágætu gestir frétta bildudalur.is, eins og þið hafið vafalaut séð þá hefur ekki verið mikið um fréttir hjá mér í sumar. Er ástæðan einfaldlega sú að ekki hefur unnist tími til. Nú haustar og verður vonandi tími til að segja fréttir oftar og kannski viðunandi oft. Þið verðið þó að sýna stundum biðlund því þetta er eins mans gerð og það er ekki alltaf rithvati til staðar.

 

En hvað um það, sumarið er að líða og hefur verið afskaplega gott sumar hér á Bíldudal í flesta staði. Margir ferðamenn hafa heimsótt staðinn, giskað hefur verið á að 12 til 14 þúsund mans hafi komið hingað og notið okkar frábæra umhverfis. Eins og fyrr leggja flestir leið sína út í Selárdal og inn  að Dynjanda, margir hafa litið við í Skrímslasetrinu og tónlistasafninu Melódíum minninganna. Siglingarnar inn í Geirþjófsfjörð á söguslóðir Gísla Súrssonar gengu vel svo og sjóstangveiðiferðir og grillferðir, er vel ljóst að sú aukna þjónusta sem til varð hér á Bíldudal í sumar, á fullan tilverurétt. Ekki eru komnar endanlegar tölur fyrir gistinætur en þær eru mun hærri en áður. Ekki megum við gleyma hátíðinni okkar, Bíldudals grænum sem kekk frábærlega vel og var gaman á.

 

Nú er haustið að hefja sína inngöngu, skólar að byrja og vetrarlífið að taka á sig sinn blæ. Vonandi verður haustið og veturinn góður, atvinna næg og mannlíf gott.

Já fréttir fara að berast aftur hér á síðunni og kannski smá önnur umfjöllun.

 

Takk fyrir biðlund, og takk fyrir í sumar allir þeir sem heimsótt hafa Bíldudal.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir