ENGLISH
mánudagurinn 6. september

Skólalóðin

 

Að undanförnu hefur verið unnið í skólalóðinni hér á Bíldudal. Fyrir allnokkru keypti foreldrafélag skólans leiktæki til að setja á lóðina og er nú verið að koma þeim fyrir. Það er Vesturbyggð sem sér um þann þátt verksins og er nú komin nokkur mynd á. Göngustígar eru lagðir milli tækjanna sem eru vegasalt, rólaur og jafnvægisslá. Síðan mun koma körfuboltagjörð og svo í framtíðinni einkvað fleira. Þetta verður veruleg bragabót á aðstöðu nemenda og annarra sem vilja stytta sér stundir við leik, ferðamenn eiga án efa eftir að nýta sér þessa frábæru aðstöðu sem nú er ekki langt í að verði tilbúin.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir