ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Nýbygging

 

Nú er verið að byggja við Veitingastofuna Vegamót hér á Bíldudal. Byggt er við húsið á þeirri hlið sem snýr að Baldurshaga og er tilgangurinn að bæta veitingaaðstöðuna og bæta aðgengi og þjónustu. Í viðbyggingunni verður anddyri og salerni, gengið verður beint inn í sölurýmið og við það þarf ekki lengur að ganga í gegnum matsalinn. Eldhúsið stækkar verulega og batnar öll aðstaða starfsfólks og viðskiptavina til muna. Uppi er svo verið að innrétta lítinn sal sem einnig verður nýttur fyrir veitingar, settir hafa verið þakgluggar og svalahurð á efri hæðina þannig að nú verður hægt að halda fundi og fá sér sal til að njóta næðis.

Við óskum veitingafólki Vegamóta til hamingju með frábærar lausnir við gamla og góða Hótelið eins og það er kallað hér á Bíldudal.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir