Nýr bátur til Bíldudals.
Fyrir nokkrum dögum kom nýr bátur til Bíldudals Ýmir BA 32. Það eru þeir bræður Sindri Már Björnsson og Hlynur Björnsson sem eru eigendur og eru nú þegar byrjaðir á rækjuveiðum. Ýmir er tréskip um 30 tonn að stærð, fallegur eikarlitaður bátur búinn til togveiða. Óskum við þeim bræðrum til hamingju með nýja bátinn sem er líklega fjórði báturinn þeirra sem ber nafnið Ýmir og fimmti báturinn sem þeir eignast. Nú eru líflegt á Bíldudalshöfn á kvöldin því það eru gerðir út sex bátar frá Bíldudal sem stendur og landa allir daglega, þrír og stundum fjórir á rækju, einn á línu og einn stundum tveir á dragnót. Líf og fjör þar sem ungir, kannski verðandi útgerðarmenn koma og fylgjast með löndun, gaman að ungdómurinn sýnir áhuga á sjónum.

Ýmir BA 32