Nýr skorsteinn
Nú er verið að ljúka við endurbyggingu skorsteinsins í Gömlu Smiðjunni á Bíldudal. Gamli skorsteinninn var farinn að hallast og steinarnir í honum ornir fúnir svo ráðast þurfti í endurbyggingu. Sóttir hafa verið múrsteinar bæði norður á strandir og í hvalstöðina út á Suðureyri sem notaðir hafa verið til endurgerðarinnar. Það er Gísli Viktors frá Patreksfirði sem hefur haft veg og vanda að endurbyggingunni. Í sumar er síðan ætlunin að Smiðjan verði til sýnis og verður þá búið að koma fyrir ýmsum munum sem tilheyra þeirri starfssemi sem þar fór fram. Þess má geta hér að í Smiðjunni voru framleiddir vélahlutir og settar saman vélar hér áður fyrr, steyptar blokkir og fl. Sjón er sögu ríkari, það verður þess virði að líta við á sumri komanda. Kannski eitt í viðbót, þarna voru líka smíðaðir trúlofunarhringir, já margt var formað og stundum rætt í þessu húsi.
