ENGLISH
mánudagurinn 6. september

Að hausti,vetri og vori er ýmislegt hægt að gera hér fyrir vestan. Í skjalinu hér fyrir neðan má finna fjögurra daga ferð sem er heilt ævintýri.

Ævintýraferð vestur á firði, upplifum sem seint gleymist. Við sækjum ykkur til Reykjavíkur og dagskráin byrjar í Bjarnarhöfn, hákarl og harðfiskur. Stykkishólmur og Breiðafjörður munu verða viðfangsefni, Látrabjarg og ósnortin náttúra Tálknafjarðar þar sem þið skoðið ykkar dýpstu hugsanir, fjöll og sandar, jafnvel norðurljós og stjörnur, heitar laugar og góður matur, já og gott rúm.

 

Allt þetta og meira til mun berast á ykkar vitund í þessari fjögurra daga ferð vestur á suðurfirði Vestfjarða. Gist er á Bíldudal og þaðan farið í dagsferðir. Allt er innifalið, ferðir, gisting, afþreying, matur og drykkir með, leiðsögn og gott skap. Veðrið mun ekki skipta máli, kannski bara meira gaman ef það er breytilegt.

 

Miðað er við að í ferð séu 16 til 26, ef það eru fleiri þá leysum við það. Frábær ferð sem vert er að fara í og upplifa. Sendum ykkur nákvæma ferðalýsingu við undirbúning.

 Hi_____v__nta____Vestrinu_2009.pdf


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir