Heimsókn í sunnudagsskólann
Það er ýmislegt sem börnin og fullornir sýsla við í Sunnudagsskólanum á Bíldudal. Komið er saman í Gamla Skóla og þar er brugðið á leik, föndrað, sungið og spilað. Nú er verið að undirbúa aðventuna og til stendur að setja upp leikrit með brúðum. Æfingar hefjast von bráðar en krakkarnir settu upp smá leikþátt svona til að sjá hvernig þetta gæti verið. Það verður gaman að sjá hvernig þetta verður á lokasprettinum, kannski náum við að fylgjast með.



