Skatan
Nú styttist í Þorláksmessu og er undirbúningur löngu byrjaður hjá kempunni Ársæli Egilssyni í Tálknafirði. Ljósmyndari átti leið um Tálknafjörð og sá hjá honum skötuna sem verður á diskum margra þann 23. desember. Lyktin var góð og útlit fyrir góða skötu, bæri saltaða og ósaltaða, stórskötu og tindabikkju. Ársæll er einn af þeim sem sjá um framleiðslu þessa þjóðar sælgætis og er skatan frá honum talin ein sú besta hér um slóðir. Nú er bara að bíða smá og láta bragðlaukanna dreyma.

