ENGLISH
mánudagurinn 6. september

Stýrið úr sambandi

 

Á þriðjudaginn bilaði sýrið á Höfrung BA  er báturinn var á landleið úr róðri. Brynjar BA kom til aðstoðar og dró Höfrung til hafnar. Í ljós kom að stýrisarmurinn á stýristammanum hafði losnað, slitnað hafði annar boltinn sem heldur stýrisarminum saman og var stýrið þá óvirkt. Sem betur fer var báturinn ekki nálægt landi þannig að ekki var hætta á ferðum. Það voru starfsmenn Loga á Patreksfirði sem náðu brotna boltanum úr og nú er allt komið í lag aftur. Rækjuveiðin hefur gengið ágætlega þrátt fyrir rysjótt tíðarfar, það hefur legið í norðaustlægum áttum en þá er stundum hvasst út Borgarfjörðinn en þar heldur rækjan sig að mestu.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir