ENGLISH
mánudagurinn 6. september

Kræklingarækt

 

Á liðnu sumri voru lagðar út þrjár nýjar ræktunarlínur fyrir krækling í Arnarfirði. Í dag var verið að skoða og yfirfara línurnar og er ásetning mjög góð. Bætt var við flotum á línurnar og svo reynist nauðsynlegt að baða þær vegna töluverðar ásetningar af krossfisk. Veður var ekki nógu gott til þess að böðunin gengi og þarf því að fara aftur til þess. Næsta sumar er áætlað að setja út fleiri línur og má búast við uppskeru eftir tvö til þrjú ár. Kræklingaræktun hefur áður verið reynd í Arnarfirði og eru nokkrar gamlar línur sem menn fara stundum í og  gera sér veislu. Kræklingur er herramanns matur og sjáum við í framtíðinni að hann verði á matseðli veitingahúsa hér fyrir vestan inna tíðar.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir