Fjarskiptamót
Nú stendur yfir alþjóðlegt fjarskiptamót og tekur fjarskiptastöðin í Otradal þátt í mótinu. Þegar litið var við hjá Otradalsbóndanum var útlit fyrir að 29 ára gamalt Íslandsmet yrði slegið. Felst það í því að samband hefur náðst við tiltekinn fjölda landa eftir ákveðnu kerfi sem fréttaritari kann ekki nógu góð skil á. Fjarskiptastöðin í Otradal er stærsta áhugamanna loftskeytastöð á Íslandi og mótið sem nú fer fram er á morsi. Það eru fjórir sem manna stöðina og standa þeir vaktir við að senda út á morsi og hlusta. Stöðin er mjög tæknileg og tækjakostur hennar góður, loftnet eru um allan dalinn og eru notaðar tölvur til að skipta á milli þeirra. Mikið álag er á þátttakendum og var því fenginn sérstakur kokkur til að sjá um matseldina. Matseðillinn var ekki af verri endanum og gómsætt var að líta yfir pottanna hjá kokknum. Forrétturinn mun hafa verið skógardúfa með hunangssoðnu rauðkáli, aðalrétturinn elgskjöt með niðursoðnum hunangs gulrótum og ofnsteiktum kartöflum og perum. Kannski eru lýsingarnar ekki allar alveg réttar á meðlætinu en að minnsta var þetta allt hið konungslegast. Ekki má minna vera þegar Íslandmet er við það að falla og nýtt sett.






