ENGLISH
mánudagurinn 6. september

Félagsmiðstöðin DÍMON

Í félagsmiðstöðinni DÍMON á Bíldudal er nú jóla undirbúningur á fullu. Jólatréð er komið upp fallega skreytt og svo er föndra á fullu. Litið var við nú í kvöld og góður andi var meðal allra eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.

Félagsmiðstöðin er til húsa í Blokkinni þar sem Jón Þórðarson lætur í té endurgjaldslaust húsnæði og Erla Rún Jónsdóttir sér um að allt gangi vel og aðstoðar þau í leik og starfi.

 

Fleiri hafa komið að sem stuðningsaðilar eins og Kalkþörungaverksmiðjan sem gaf öllum hettupeysur með merki félagsmiðstöðvarinnar,

Klara Harðardóttir gaf þeim geislaspilara og Kvenfélagið Framsókn DVD spilara. Karl Þór lagði viðbótarraflagnir og tengdi diskóljós og svo stendur til að dósamóttakan komi að sem styrktaraðili og er þar verið að velta fyrir sér húsgögnum. Þannig hefur tekist að búa ágætlega að unga fólkinu á Bíldudal og eru þau afar þakklát öllum þeim sem aðstoðað hafa þau við að koma sér upp samastað til að hittast í leik og starfi. Á þriðjudaginn kemur ætla þau svo að halda litlu jólin með pompi og prakt.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir