Fyrsta bókun skemmtiferðaskips til Bíldudals
Fyrsta bókun skemmtiferðaskips til Bíldudals er orðin að veruleika. MS Prince Albert II hefur bókað komu sína til Bíldudals 1. sept. 2011 en skipið tekur um 150 farþega. Er Bíldudalur þar með búinn að stimpla sig inn sem viðkomustaður farþegaskipa? Já vonandi er þetta áfangi á þeirri leið sem Bíldælskir ferðaþjónar hafa markað sér til framtíðar.
Þessi frétt, að skemmtiferðaskip hafi bókað komu sína 2011 er stór frétt fyrir ekki stærra samfélag en Bíldudal sem telur vart meira en 150 manns og er ungt í sögu ferðaþjónustu á sunnanverðum Vestfjörðum.

MS Prince Albert II er 108 metra langt farþegaskip og um 6 þúsund tonn að stærð sem tekur um 150 farþega.