ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Hafkalk frá Bíldudal

 

Síðsumars kom á markaðinn Hafkalk sem framleitt er á Bíldudal. Nú eru að koma fram reynslusögur þeirra sem tekið hafa inn þetta nýja bætiefni en það er einkum ætlað þeim sem hafa liðagigt og tengda sjúkdóma. Óhætt er að segja að margir telja sig fá bætta líðan af því ð taka inn þetta nýja bætiefni. Fréttaritari varð vitni af einni slíkri reynslusögu á ferð í Reykjavík nýlega. Tveir menn á tali; “ertu farinn að taka inn Hafkalkið sem ég færði þér um daginn,,, já ég var að byrja, er að taka eina að morgni og eina að kvöldi,,,, það er gott að heyra ég er núna búinn að taka þetta í tvo mánuði og mér líðum miklu betur, verkirnir eru nánast horfnir úr liðunum, þetta er ótrúlegt hvað þetta efni frá Bíldudal virkar vel.”

 

Svona sögur eru að fara á milli manna, ekki ætlum við að fullyrða neitt hér um áreiðanleika en það er víst að margir eru farnir að taka inn Hafkalk frá Bíldudal.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir