ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Útflutningur og fl. frá Bíldudal

 

Á fimmtudaginn var lokið við að skipa út síðasta farminum af unnum kalkþörungi á þessu ári frá Kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal, um 2.600 tonnum sem fara til Írlands.  Á árinu er búið að skipa út um 20.000 tonnum af unnum kalkþörungi og um 14.000 tonnum af óunnum. Stöðugt hefur dregið úr útflutningi á óunnu efni og ekki er gert ráð fyrir miklum slíkum útflutningi á næsta ári.

 Starfsmenn húkka á fyrir hífingu.

Staflar unnis hráefnis

Unnið er að uppsetningu nýrrar vinnslulínu til framleiðslu túnáburðar sem er viðbót við þá sem fyrir er. Er hér um að ræða vinnslulínu sem kornar  kalkþörungaduft og gefur það jafnframt möguleika á íblöndun annarra efna í áburðinn til að bæta hann enn frekar. Ætlunin er að gangsetja nýju vinnslulínuna fljótlega eftir áramót.

 

Einnig er unnið að því að skipta um orkugjafa fyrir verksmiðjuna en nú er notað gas við þurrkunina. Verið er að undirbúa rafhitun til þurrkunar og verða sett upp hitaelement sem gefa frá sér um 500 gráðu heitt loft sem blásið verður inn í þurrkarann. Áætlað er að orkuþörf þessa búnaðar verði um 1,8 MW og er þá orkunotkun verksmiðjunnar komin í um 2,2 MW.

 

Einn af nýju turnunum til rikheynsunar

Þriðja atriðið sem unnið er að er að bæta rykhreinsun útblásturs verksmiðjunnar. Eins og við á Bíldudal höfum orðið vitna að á stundum, þá hefur rykmengun frá verksmiðjunni verið talsverð.  Nú verður það lagfært með uppsetningu nýs búnaðar og er áætlað að nýjar rykskiljur verði settir upp og teknir í notkun í janúar. Þetta er allt búnaður sem verður innan dyra og mun hann draga verulega úr rykmengun og auka nýtingu hráefnis.

 


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir