ENGLISH
mánudagurinn 6. september

Sungið af hjartans list

 

Karlakórinn vestri fór í ferðalag um þorpin þrjú nú á laugardaginn. Sungið var á nokkrum stöðum, verslunum, veitingastöðum og á Sjúkrahúsinu. Heimsóknin á Sjúkrahúsið er þeim afar kær en þangað hafa þeir komið aðra hverja helgi í vetur og sungið fyrir dvalarfólk. Að þessu sinni voru sex lög á dagskrá á hverjum stað og viðtökur áheyrenda góðar enda eru á ferð góðir söngmenn sem æva stíft í hverri viku. Svona uppákomur eru skemmtilegar fyrir íbúanna og sýnir hve mikill áhugi er fyrir söng á svæðinu. Takk kærlega fyrir Vestramenn.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir