Laxeldi í Arnarfirði
Í gær kynntu fyrirtækin Þóroddur ehf. og Fjarðarlax ehf. áform um verulegt laxeldi í Arnarfirði. Stefna fyrirtækin á allt að 10.000 tonna framleiðslu og þá eldi í fjörðunum Arnarfirði, Tálknafirði og Patreksfirði. Áætlað er að hefja eldi í Arnarfirði í vor og svo mun þetta vaxa og dafna. Afurðir er fyrirhugað að flytja vestur um haf og þá aðallega með skipum. Á fundinum komu fram óskir um að hagsmunaaðilar kæmu sér saman um nýtingu fjarðarins, það er; laxeldi, rækjuveiðar, kræklingaeldi, þaraeldi og ferðaþjónusta.
Jafnframt mun annað fyrirtæki tengt Noregi og íslendingum búsettum þar vera að undirbúa og plana verulegt laxeldi og úrvinnslu laxaafurða á Bíldudal. Líklegt er að þau áform verði kynnt í febrúar.
Það er ekki að því að spyrja að Arnarfjörður virðist á stundum bjóða upp á ýmsa möguleika sem þó einkveraveginn láta á sér standa. Ekki er þó verið að gera því skóna að þessi áform sem nú hafa verið kynnt til sögunar og þau sem í vændum eru verði ekki að veruleika sem slík, en þó er fróðlegt að líta um öxl.
Fyrir allnokkrum árum voru kynnt áform um laxeldi í Arnarfirði sem áttu að gjörbylta allri atvinnusköpun á svæðinu, flest var orðið klárt og lítið annað en að hefjast handa. Ekki bólaði þó á neinu og áformin lögð á hilluna.
Á svipuðum tíma voru áform um Kalkþörungaverksmiðju kynnt og vitið menn, verksmiðjan er komin til að vera og stækkar og stækkar.
Þá kom næst bolfiskvinnsla, sterkt og gott fyrirtæki hélt kynningafund og áformin voru allgóð, gera betur en aðrir. Fyrirtækið starfaði í nokkrar vikur en hætti síðan og áformin lögð á hilluna.
Á eftir komu aðilar sem ekki héldi kynningafund en hófu rekstur útgerðar og vinnslu sjávarfangs og starfa enn sem komið er.
Svo kom stóra áformið, 99% öruggt að verði. Haldin ráðstefna, farið í rannsóknir og mikil áform um Olíuhreinsistöð, gríðarlega stórt tækifæri sem myndi sko verða þvílík vítamínsprauta inn á Vestfirði að þeir yrðu nafli alheimsins. Þeir sem höfðu efasemdir voru talaðir niður í svaðið sem svartsýnismenn og gert það ljóst að viðskipti hefðu þeir ekki af pakkanum ef málflutningur þeirra héldi áfram.
Nú er spurt, hvernig eiga menn að höndla þetta allt saman? Eiga menn að fara í væntingar, gæta tungu sinnar, trúa og verða uppveðraðir?
Er verið í kapphlaupi um að helga sér land á kannski hnitmiðaðra markmiða og áforma, vera á undan einhverjum öðrum, eða eru menn að gera þetta allt saman að alvöru og hvenær sjáum við svo alvöruna.
Nú verður hver að líta í eigin barm og hugleiða.
