Gólf spilað að vetri
Í vetur hefur veðrið verið þannig að það hefur verið hægt að spila gólf á Bíldudalsvelli flesta daga. Á dögunum þegar fréttaritari var á leiðinni í sund á Tálknafirði, það var að vísu hálfgert rok og rigning, sást til þó nokkurra gólfspilara á vellinum og renndi hann þá að Skálanum og náði ágætri mynd af þeim hjónum Hreini og Guðnýu koma úr góðum hring.
