Byggt við Vegamót
Vel gengur að byggja við Veitingastofuna Vegamót. Í liðinni viku voru veggir og sperrur reistar og í tilefni var flaggað, já þakið fór á líka og er nú komin mynd á mannvirkið. Þarna er verið að byggja nýtt anddyri og snyrtingu. Mun framkvæmdin hafa í för með sér verulegar breytingar innandyra, eldhús stækka og salurinn frammi nýtast mun betur.
