Sólarkaffi
Sólarkaffi Kvenfélagsins Framsóknar var haldið í Baldurshaga í dag. Að vanda voru veitingar góðar og fjölmennt var í salnum. Börnin skipa alltaf sinn sess á Sólarkaffi og stigu leikskólabörnin á stokk og sungu fyrir gesti. Þau eldri frá Félagsmiðstöðinni Dymon fluttu einnig brandara og var vel hlegið að þeim. Bingó var síðan spilað og margt góðra vinninga. Reyndar byrjaði dagurinn með Messu kl 14.00 þar sem Séra ásta þjónaði fyrir altari og fermingabörnin lásu ritningalestur dagsins. Messan var góð og ræða Séra Ástu eftirtektarverð. Já góður dagur á Bíldudal að kveldi kominn.


