ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Laxeldi í Arnarfirði

Á laugardaginn 13. febrúar var haldinn kynningarfundur á Bíldudal með Bæjarstjórn Vesturbyggðar og svo hagsmunaaðilum um áform Arnarlax ehf. um uppbyggingu á laxeldi og fullvinnslu laxaafurða í neytendapakkningar á Bíldudal.

Frá fundi með Bæjarstjórn Vesturbyggðar

Arnarlax ehf. er nýtt félag með aðsetur á Bíldudal og að því standa brottfluttir Arnfirðingar með Matthias Garðarsson í forsvari en hann á og rekur laxeldisfyrirtækið Salmus AS í Noregi með um 8.000 tonna árs framleiðslu.

Þessir aðilar hafa undanfarinn tvö ár verið að safna gögnum og skoðað hvort laxeldi í Arnarfirði geti verið áhugaverður kostur. Arnarlax ehf. stefnir á eldi á 3-4000 tonnum á þremur stöðum í firðinum og fullvinnslu á afurðum á Bíldudal sem mun skapa um 60-70 störf. 

Frá fundi með hagsmunaaðilum 

Næstu skref eru að klára leyfisumsóknir og hefja nýjar rannsóknir og í framhaldi af því tilraunareldi, sem mun verða í höndum norskra sérfræðinga og gera menn ráð fyrir að fjármögnun komi að öllu eða mestu frá norskum fjárfestum. Gerir Arnarlax ráð fyrir, að framleiðsla geti hafist á Bíldudal eftir 4 ár en það er markmið félagsins að fullvinna hráefnið í neytendapakkningar á Bíldudal.

 

Mikil óánægja hefur skapast meðal hagsmunaaðila í Arnarfirði vegna stjórnlausra leyfisveitinga í firðinum og það kapphlaup sem virðist vera í gangi. Á fundi sem hagsmunaaðilarnir héldu á laugardaginn var samin ályktun þar sem krafist var þess að öll svo kölluð bráðabirðaleyfi þ.e 200 tonna leyfi verði afturkölluð því staðsetningar þessara leyfa eru mörg á hefðbundinni veiðislóð í firðinum að öðrum kosti verði farið fram á skaðabætur. Það kom fram að aldrei hefur verið haft samband við hagsmunaaðila varðandi staðsetningu þegar úthlutað er leyfum.

Hagsmunaaðilar hafi einnig undirritað stuðningsyfirlýsingu við áform Arnarlax ehf. enda hefur fyrirtækið frá upphafi unnið  í sátt og samvinnu við heimaaðila.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir