ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Laxeldi í Arnarfirði á næsta leiti

Fyrirtækin Þóroddur ehf á Patreksfirði og Tálknafirði ásamt Fjarðalax ehf vinna nú hörðum höndum að undirbúningi laxeldis á sunnanverðum Vestfjörðum. 

Fyrirtækin tvö hafa unnið sameiginlega að undirbúningi þessa stóra verkefnis um nokkurt skeið.  Bakhjarl Fjarðalax ehf  er bandaríska fyrirtækið North Landing LLC sem starfar í New Jersey og er stór aðili á markaði með innfluttan eldislax til USA.  North Landing er 20 ára gamalt fyrirtæki, stofnað og byggt upp af íslendingnum Braga Henningssyni en var selt fyrir tveimur árum og er nú að þriðjungi í eigu annars íslendings, Arnórs Björnssonar auk erlendra fjárfesta.  North Landing vinnur um 10.000 tonn af laxi árlega í verksmiðju sinni og selur til matvörumarkaða, veitingahúsakeðja og heildsala á austurströnd USA. 

Þetta er að vísu þorskur en laxinn er ekki síðri í mynd

Samstarf Fjarðalax ehf og Þórodds ehf hófst á síðasta ári og hefur það verið farsælt.  Nú styttist í að fyrsti fiskur fari í sjó en gangi áætlanir eftir verða um 100.000 laxaseiði í eigu Fjarðalax sett í nýja sjókví í Fossfirði í júni/júlí 2010.  

Dótturfélag Fjarðalax, Ísþór ehf, vinnur að framleiðslu stórseiða í seiðastöð sinni við Þorlákshöfn en þau eru  lykilforsenda þess að verkefni af þessu tagi gangi upp.  Ræktun stórseiða í öflugri landstöð kemur þannig til móts við þann hæga vöxt sem óhjákvæmilega fylgir laxeldi í svo köldum sjó sem raun ber vitni hér við land. 

Stórseiðin hyggjast félögin svo flytja í sjókvíar í Arnarfirði, Patreksfirði og Tálknafirði þegar þau hafa náð heppilegri stærð.  Áætlanir gera ráð fyrir að fyrsti skammtur af þeim verði sjóklár vorið 2011 og er að fyrsta slátrun fari fram um áramótin 2011/2012.  Slátrun og pökkun mun fara fram á svæðinu og er ljóst að talsverð atvinnusköpun mun hljótast af verkefninu nái þessar áætlanir fram að ganga, auk augljóss ávinnings af auknum flutningum til og frá svæðinu.

Fjarðalax ehf er nú þegar með hrogn og seiði í fóðrun sem nema munu samtals um 3000 tonnum af laxi í sláturstærð þannig að verkefnið er sannarlega komið vel af stað.  Reynist aðstæður á svæðinu jafngóðar og rannsóknir benda til og gangi áætlanir eftir,  þá er fyrirtækjunum sem að þessu verkefni standa ekkert að vanbúnaði að stefna á umfangsmikla starfsemi með ársframleiðslu sem gæti numið allt að 10.000 tonn á árunum 2017-2018. 

Fjármögnun verkefnisins er tryggð og segja má að sá lax sem framleiddur verður sé í raun þegar seldur enda er Bandaríkjamarkaður sá vænlegasti fyrir afurðir af þessu tagi um fyrirsjáanlega framtíð.  Leyfamál fyrir starfsemina eru óðum að skýrast og eru forsvarsmenn Fjarðalax ehf og Þórodds ehf bjartsýnir á framhaldið.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir