ENGLISH
fimmtudagurinn 9. september

Tilnefning til markaðsverðlauna

 

Margmiðlunarborðið í Skrímslasetrinu á Bíldudal hefur verið tilnefnt til Lúðursins, markaðsverðlauna ÍMARK í opnum flokki.

Borðið, sem vakið hefur mikla athygli, er hannað af Margmiðlunarfyrirtækinu Gagarín. Í borðinu geta gestir setursins ferðast um Arnarfjörð og á söguslóðum birtast textar og myndskreyttar frásagnir af viðureignum manna og skrímsla. Hægt er að velja viðmót á íslensku eða ensku. Magnús B. Óskarsson sá um myndvinnslu og myndskreytingar borðsins.

Á heimasíðu Gagarín www.gagarin.is má finna frekari fróðleik um margmiðlunarborðið.

 

Skrímslasetrið verður opið alla daga í sumar frá 1. júní til 10. 

september.

 

Skrímslasetrið er á Facebook og heimasíða verður opnuð á næstu vikum.


Áhugaverðir staðir

Áhugaverðir vefir